Skildi Mary vanta varalit ? ég er enn að selja ef fleiri vilja styrkja gott málefni !!
6.5.2008 | 11:52
Hæ elskurnar. Salan á varalitunum gengur svo vel að það er algjört æði. Vá, hvað það er gaman að vera með verkefni í gangi, finnst ég eitthvað svo "important" nú er ég farin að selja hér í bæ, bæði í apótekinu og hjá Íslandspósti, allar konur vitlausar í varalit og að styrkja gott málefni. Mér datt í hug að brenna upp á Nesjavelli og hitta kóngafólkið og bjóða þeim að styrkja okkur. Held nú samt að mér yrði ekki hleypt nálægt, ég sem er svo mega góð í dönsku. Ég er semsagt við tölvuna í dag og er að stússa í pöntunum ofl. allt þarf nú að stemma, hugsið ykkur, bara þetta litla framtak mitt er komið upp í 180.000 til Krabbameinsfélagsins. Ég er ofsa kát.
Eigum við ekki bara að skellihlægja öll saman.??
|
Friðrik og Mary fóru á hestbak |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |









Athugasemdir
Mary mundi örugglega kaupa varalit af þér til að syiðja málefnið, hun er svo yndisleg manneskja, mjög vinsæl her.
Knus til þín elsku Ásdís mín
Kristín Gunnarsdóttir, 6.5.2008 kl. 12:13
Já kannski mundi Mary kaupa varalit hver veit
Hafðu það gott Ásdís mín
Kristín Katla Árnadóttir, 6.5.2008 kl. 12:20
Hólmdís Hjartardóttir, 6.5.2008 kl. 12:43
Hvar er hægt að kaupa þennan varalit í Reykjavík?????
Inga (IP-tala skráð) 6.5.2008 kl. 13:28
Er á leiðinni að senda þér. Er reyndar ekki heima fyrr en seint í kvöld. Barnapía júnó.
Smjútsí.
Jenný Anna Baldursdóttir, 6.5.2008 kl. 13:32
Frábaert framtak hjá zér .... zad vaeri snilld ad rúlla til kóngafólksins og selja zeim eitt stk. lit! KNús inn í daginn ....
www.zordis.com, 6.5.2008 kl. 13:34
Frábært hjá þér Ásdís, það munar um minna 180.000 geggjað.
Ég fór í Mjóddina áðan og er búin að ganga frá öllum okkar viðskiptum þar.
Linda litla, 6.5.2008 kl. 14:16
Verður hún ekki í nágrenni við þig á eftir, ég held það
Fríða Eyland, 6.5.2008 kl. 14:29
Þetta er frábært framtak hjá þér Ásdís
.
Sigrún Jónsdóttir, 6.5.2008 kl. 15:26
Væri nú ekki slæmt að prinsessan (þessi ekta sko ekki við hinar
) væri með sama varalit og margar konur hér 
Dísa Dóra, 6.5.2008 kl. 15:27
Hún mundi örugglega kaupa varalit,
Uss snúllan mín auðvitað hlæjum við saman.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 6.5.2008 kl. 15:28
Ég bíð spennt hérna úti í Eyjum eftir glossinu frá þér. En annars, hann Júlíus Júlíusson á Dalvík var að stinga upp á því við fólk, að það gæfi prik dagsins fyrir eitthvað sem því fyndist þess vert að veita prik fyrir. Mig langar bara mikið til þess að stinga upp á því að þú fáir prik dagsins, mér finnst þú eiga það svakalega mikið skilið! Bestu kveðjur frá nöfnu þinni í Eyjum.
Ásdís Emilía Björgvinsdóttir, 6.5.2008 kl. 16:34
Sæl nafna mín og kærar þakkir fyrir prikið. Ég ætlaði að kíkja á síðuna þína en sé að þú ert ekki farin að skrifa neitt ennþá, fylgist með þér. Þinn litur fór í póst í dag þannig að hann ætti að vera kominn til Eyja á morgun.
Asdis Sig, 6.5.2008 kl. 16:51
Glossið er komið til mín og er ég ánægð með litinn að ég tali nú ekki um ánægjubrosið sem kom á dætur, hef einhvern veginn grun um að ég fái ekki að sitja ein um það!
Takk fyrir mig
Huld S. Ringsted, 6.5.2008 kl. 17:02
Ég stofnaði þessa síðu um daginn, þegar ég bloggaði við frétt. Mig langar mjög mikið að gerast bloggari, ég hef hinar ýmsu skoðanir á hinum ýmsustu málum, það á eftir að koma hjá mér. Það væri nú gaman að eignast góða bloggvini, værir þú nokkuð til í að gerast bloggvinur minn? Mér væri það sannur heiður! Með bestu kveðju, Ásdís.
Ásdís Emilía Björgvinsdóttir, 6.5.2008 kl. 17:12
Sömuleiðis Ásdís mín. Þú finnur alveg fullt af skemmtilegu og áhugaverðu fólki í gegnum síðuna mína ef þú vilt.
Asdis Sig, 6.5.2008 kl. 17:24
Verð bara að segja þér hvað skeði hér í dag. Minn elskulegi var að fara á fund svona uppstrílaður og kyssti mig bless eins og vanalega. Eftir kossinn segir hann og smjattar út um hvað ertu með á vörunum kona? og síðan kom langt OOOOjjjjj hehehheheh
Ía Jóhannsdóttir, 6.5.2008 kl. 17:32
Maður á víst að segja gerðist en ekki skeði, eins gott að Ómar lesi þetta ekki
Ía Jóhannsdóttir, 6.5.2008 kl. 17:34
Var það þessi ljósari????
Asdis Sig, 6.5.2008 kl. 17:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.