9.7.2012 | 14:10
Mér finnst alltaf gott þegar ég er ekki eini vitleysingurinn. !!
Reyndar hef ég skrifað áður um tónlist Bjarkar og endurtek því hér og nú að ég bara get ekki hlustað á hana. Hef reynt og reyndi meira að segja enn og aftur núna nýlega að hlusta á eitthvað lag og varð bara að slökkva, mér líður eins og kjána eða ég veit ekki hvað þegar ég heyri í henni, er ég svona skrítin eða er það hún? ég veit allt um það að smekkur fólks er misjafn en ég fæ bara hreinlega aulahroll þegar ég hlusta á stelpuna (konuna) sum tónlist er einfaldlega leiðinleg og önnur skemmtileg en í þessu tilfelli er það eitthvað allt annað sem gerist innra með mér. Hefði kannski alveg geta sleppt því að blogga um þetta, en er ekki bloggið einmitt til að fá útrás fyrir hugsanir?
|
„Rödd Bjarkar er eins og mauksoðið rósakál“ |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |









dolla
hross
milla
skralli
jodua
gudnyanna
ollana
don
ommi
naflaskodun
lebowski
skagstrendingur
jensgud
bjarnihardar
harhar33
martasmarta
herdis
sigro
estersv
beggo3
athena
kiddatomm
huxa
sigrunzanz
sighar
saedis
makeupgallery
hogni
zordis
asdisemilia
jonsnae
agbjarn
sattekkisatt
brandurj
ea
gudjonelias
axelma
kristjan9
marinogn
Athugasemdir
Þú ert síður en svo ein um þetta. Ég hef aldrei skilið þessa aðdáun á henni og get bara ekki fundið neitt gott við þessi "gól" hjá henni. Ég bara hreinlega fæ "grænar bólur og exem á rassgatið" þegar ég heyri í henni................
Jóhann Elíasson, 9.7.2012 kl. 14:41
Björk kvaddi þennan heim 1986 með Ammæli. Það er erfitt fyrir snilling að toppa snemma.
Hilmar Hafsteinsson (IP-tala skráð) 9.7.2012 kl. 15:19
Ekki var við öðru að búast hjá afglapanum Dabba, en að gera þessa setningu að fyrirsögn.
Maðurinn er ósvífinn og frekur.
Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 9.7.2012 kl. 17:06
Þú ert svo sannarlega ekki ein. Ég hef gert margar tilraunir til þess að hlusta á Björk, og í hvert sinn gefst ég upp. Mér þykir það í raun hreinlega líkamlega átakanlegt að hlusta á tónlistina hennar.
Ingibjörg Axelma Axelsdóttir, 9.7.2012 kl. 17:10
Óþol fyrir Björk á tæplega við um músíkina. Björk hefur gert "allskonar" músík; allt frá léttum djassi til pönks. Ein platan hennar, Medúlla, er án hljóðfæra. Þar er aðeins söngur.
Óþolið hlýtur að vera gagnvart söngrödd Bjarkar. Björk hefur sérstæða og auðþekkta söngrödd. Ég er hrifinn af söngrödd hennar en ég hef ekki gaman af allri hennar músík. En margt með henni þykir mér vera yndislegt og frábært.
Jens Guð, 9.7.2012 kl. 19:09
Ég get verið sammála því að stíll Bjarkar er ekki mjög heppilegur á rokkhátíð og það allra síst að ljúka þeim með henni.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.7.2012 kl. 19:18
Þú ert ekki eini kjáninn
Jónína Dúadóttir, 9.7.2012 kl. 19:41
Hún á nokkur sæmileg lög, kannski 3.. en svona yfirhöfuð þá er þetta algert vol og væl sem kemur frá henni.. svona sovét þunglyndi eitthvað
DoctorE (IP-tala skráð) 9.7.2012 kl. 19:50
Ég er viss um að Kettirnir hennar Ásthildar haf fallegri Rödd en Björk..
Vilhjálmur Stefánsson, 9.7.2012 kl. 19:53
Björk Guðmundsdóttir hefur verið sómi Íslands og bætt ímynd landsins á erlendri grund. Og ekki vanþörf á eftir útrásarbófana og forsetagarminn. Svo kemur titturinn hann Dabbi og reynir að gera lítið úr þessum merka listamanni í LÍÚ sorpritinu. Maðurinn virðist ekki hafa snefil af sómatilfinningu.
Segið mér eitt, eru menn ekki búnir að fá upp í kok af Davíð Oddssyni?
Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 9.7.2012 kl. 20:00
Haukur, óþol mitt fyrir Davíð Oddssyni væri ekkert síðra þótt hann myndi feta tónlistarveginn, frekar en óþol mitt fyrir Björk færi eitthvað minnkandi færi hún í pólitík.
Ingibjörg Axelma Axelsdóttir, 9.7.2012 kl. 20:54
@Ingibjörg. Þegar ég sá að frekjuleg ummæli sem Björk fékk hjá einum blaðamanni voru gerð að fyrirsögn í Mogganum gekk fram af mér. Björk hefur gert garðinn frægan um víða veröld, sama hvað fólki finnst um hennar söng eða hennar list.
Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 9.7.2012 kl. 21:28
Ingibjörg Axelma, DOddsson var dálítið í poppinu í gamla daga. Reyndar aðallega sem klámtextahöfundur. Þetta orti hann fyrir um hálfri öld: http://www.youtube.com/watch?v=Sevh_IWe4kk
Á sínum tíma söng Hannes Jón þetta inn á plötu. Síðar urðu popptextar DOddssonar virðulegri, svo sem Við Reykjavíkurtjörn, sem hann hefur átt til að syngja með Agli Ólafs.
Jens Guð, 9.7.2012 kl. 22:15
Enda sagði ég ekkert um hennar afrek, sem slík, Haukur.
Jens, enginn er verri þótt hann sé perri.
Ingibjörg Axelma Axelsdóttir, 9.7.2012 kl. 23:07
Brúsi eða Björk?
Ekki spurning, ég vel Brúsa og hlusta á nötrandi fílinginn í Born to Run.
Rock and roll, save my soul:-)
Pétur Örn Björnsson (IP-tala skráð) 10.7.2012 kl. 00:35
Pétur Örn, þau Brúsi frændi og Björk eru svo ólík í músík og söngstíl að annað útilokar ekki hitt. Ég er "svag" fyrir þeim báðum. það er alveg margt leiðinlegt með Brúsa. En líka margt frábært. Brúsi Friðrik Jósef Sprengjusteinn hefur gengið í gengum mörg ólík skeið í músík sinni. Hann hefur líka verið að frá því löngu áður en Björk kom til sögunnar. Fyrstu plötur hans komu út 1973. Hann hefur "progað"; hann hefur sent frá sér órafmagnaða kassagítarplötu (Nebraska); hann hefur rokkað hressilega (Born in the USA); afgreitt þjóðlagakennt heimspopp (world music) (The Seeger Session), léttpopp og allskonar.
Jens Guð, 10.7.2012 kl. 01:31
...gegnum, átti það að vera...
Jens Guð, 10.7.2012 kl. 01:32
Neibb, fíla heldur ekki Björk og ekki Sigurrós, en samt fín landkynning:)
Skúli (IP-tala skráð) 10.7.2012 kl. 01:38
Ég verð að viðurkenna að mest af því sem Björk hefur gert fellur ekki að mínum smekk. Þó verð ég að nefna plötuna Glingló, en það er ein besta hljómplata sem gefin hefur verið út á Íslandi frá upphafi vega að mínu mati. Ég ber samt mikla virðingu fyrir Björk. Eins og áður er búið að nefna, þá er hún búin að vera ótrúlega góður fulltrúi íslensku þjóðarinnar erlendis og mér finnst aðdáunarvert hve trú hún er sjálfri sér og sinni list. Hún hefur t.d. alltaf stjórnað sínum kúrs sjálf, en ekki látið útgefendur ráðskast með sig.
Theódór Gunnarsson, 10.7.2012 kl. 08:25
Sko, mér finnst Sigurrós og Björk vera afar leiðinleg, ég skipti um stöð ef þetta kemur á; En ég virði þau samt fyrir að fylgja ekki straumnum og gera bara sína eigin tóna... eru ekki eltast við sykurhúðað spangól fjöldaframleiðslunnar eins og svo margir sem eru ekkert nema ómerkilegar eftirlíkingar af öðrum ómerkilegum eftirlíkingum
DoctorE (IP-tala skráð) 10.7.2012 kl. 08:50
Sammála þessu
Skúli (IP-tala skráð) 10.7.2012 kl. 09:58
Takk fyrir öll innleggin ykkar. Auðvitað hefur fólk þetta bara eins og það vill og kannski hefur hún verið góð landkynning, en kannski er okkur bara sagt að hún sé það, allavega forðast ég allar fréttir tengdar henni og tónlistina líka en það er bara ég og svosem ekkert meira um það að segja.
Ásdís Sigurðardóttir, 10.7.2012 kl. 17:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.