Við höfum auðvitað ekki allar þær verslanir sem eru á höfuðborgarsvæðinu, en hér er Nettó, Krónan, Bónus og Samkaup held ég það heiti. Ég fór þá leiðina, að versla fyrst í Nettó og fór svo með þann strimil og verslaði í Krónunni, það var bara hræðilegt, Nettó er engan vegin að gera sig hér í bæ. Allt var dýrara og fyrir mína matarkörfu munar bara allt of miklu, fer ekki þangað aftur. Held að Selfyssingar hafi verið fljótir að átta sig á þessu því að þarna er aldrei neitt að gera þó svo Nettó reyni að vera með grill og uppákomur um helgar, held þeir ættu bara að játa sig sigraða strax. Nú var komið að Bónus, þeirri búð sem ég hef verslað mest í, ég riggaði austur eftir á bílnum, því Bónus er ekki lengur í göngufæri, það er mínus. Svo verslaði ég mína venjulegu heimiliskörfu og nokkrum dögum síðar fór ég með þann strimil í Krónuna og bar saman og viti menn, Krónan var einni krónu yfir í flestu, nema einum kexpakka sem var sex krónum dýrari hjá krónunni heldur en Bónus, aðeins 3 vöruflokkar í Krónunni voru ódýrari og þá 2-3 krónum. Þetta á auðvitað bara við um mína privat matarkörfu, en semsagt þá kemur þessi frétt og niðurstaða hennar mér ekki á óvart. Samkaup er svo verslun sem erfitt er að bera saman við, þar er allt annar opnunartími og verð þar því mun hærra, það versla ég bara í hallæri. Svo má geta þess að lokum að Krónan er í göngufæri fyrir mig og þá sparast bensín.
Góðar stundir
|
Hækkun hjá öllum nema Krónunni |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |









dolla
hross
milla
skralli
jodua
gudnyanna
ollana
don
ommi
naflaskodun
lebowski
skagstrendingur
jensgud
bjarnihardar
harhar33
martasmarta
herdis
sigro
estersv
beggo3
athena
kiddatomm
huxa
sigrunzanz
sighar
saedis
makeupgallery
hogni
zordis
asdisemilia
jonsnae
agbjarn
sattekkisatt
brandurj
ea
gudjonelias
axelma
kristjan9
marinogn
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.