Góður þáttur í heildina. Væri ekki betra ef við fengjum að kjósa fyrst með hjartanu og svo heilanum?

Í mínum huga eru þær sigurvegarar kvöldsins, Andrea og Herdís.  Þóra er farin að ofspila all svakalega og mér fannst hún undirstrika þá skoðun sem hefur verið að mótast í huga mínum, að hún er að vinna fyrir ákveðinn þjóðfélagshóp,  fólkið sem hefur það bara alveg ágætt og kvíðir ekki árunum sem ókomin eru, hún er líka ung og skilur ekki þá sem eldri eru.  Þóra notar mikið orðin auðmýkt, virðing og samstaða, en mér finnst ekki neitt á bakvið þau. Reyndar ofnota þau flest þessi orð og það er þeim ekki til framdráttar í mínum huga.  Hannes er lágætur á margan hátt en ekki sá forseti sem við þurfum núna.  Ari Trausti veldur mér vonbrigðum því meira sem ég heyri í honum, því minna finnst mér varið í hann og það segir mér að ég verði fljótt óánægð með hann sem forseta. Ólafur er svipaður því sem hann hefur verið í 16 ár og einmitt þessvegna ættum við að fá nýjan forseta, það er ekkert sem hann þarf að gera sem góður og vel valinn nýr forseti gæti ekki gert. Eftir sit ég þá með það að þurfa að gera upp hug minn, gef mér þrjá daga í það en allavega Ari Trausti er dottin af stallinum hjá mér.

mbl.is Andrea myndi leggja fram frumvarp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Antonsson

Skemmtilegar pælingar hjá þér og mikið er ég sammála.

Lék mér við að gera krossapróf á DV um forsetaframbjóðendur og þá komu Hannes og Andrea í efstu sætin. Treysti ekki nógu vel á leiki í DV þar sem þeir sleppa úr ýmsu þegar það hentar þeim. Af skoðanakönnunum má ráða að öllu máli skiptir að vera nógu oft í fjölmiðlum til að skora hátt. Þá ræðst fylgið eftir því sem menn sjá mest og heyra. RÚV hefur ískyggilega mikill áhrif. Stöð sem margir greiða mikið til en nota því minna. Í Egyptalandi þokast lýðræðið áfram og svipað er að gerast hér þótt hægt miði. 20 ára valdatími er of mikið.

Sigurður Antonsson, 24.6.2012 kl. 21:27

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Flott samantekt hjá þér Ásdís mín, að mörgu leyti sammála.  Herdís og Andrea komu vel út, og reyndar Ólafur Ragnar líka, Ari mér er svipað farið og þér hann hefur dalað verulega.  Þóra er að mínu mati stórlega ofmetinn og hefur ekkert til málanna að legga. Hannes gæti komið til, en er ekki maður að mínu skapi of aggressífur sem má ekki sem forseti.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.6.2012 kl. 00:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband