22.7.2011 | 11:08
Afhverju var ég sofandi ??
Steinsofandi inn í draumaheimi missti ég af þessum mikla bruna. Mér hefur reyndar fundist þetta vera óttalega ljótar byggingar núna síðustu árin og tel það næstum því gott að þetta er horfið af yfirborði jarðar og verður hreinsað til, kannski að það verði þá hægt að byggja upp huggulegan stað sem dregur að útlendinga jafnt sem Íslendinga. Eden á stað í hjörtum margra, þarna kíkti maður sunnudagsrúntinn í den og gaf börnunum ís og fleira. En staðurinn var orðinn illa farinn. Vonandi er þetta vel tryggt þannig að þeir sem gætu tapað á þessum bruna fá sitt bætt.

|
Eldurinn öskraði |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Flokkur: Umhverfismál | Facebook









dolla
hross
milla
skralli
jodua
gudnyanna
ollana
don
ommi
naflaskodun
lebowski
skagstrendingur
jensgud
bjarnihardar
harhar33
martasmarta
herdis
sigro
estersv
beggo3
athena
kiddatomm
huxa
sigrunzanz
sighar
saedis
makeupgallery
hogni
zordis
asdisemilia
jonsnae
agbjarn
sattekkisatt
brandurj
ea
gudjonelias
axelma
kristjan9
marinogn
Athugasemdir
Æ já þetta er óttalega sorglegt, en gott samt að það gerðist um nótt en ekki þegar fólk var við vinnu og gesti. Það hefði getað farið illa miðað við hvernig bruninn bar að.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 22.7.2011 kl. 12:04
Það er alltaf sorglegt þegar svona skeður, þetta er án vafa stórt fjárhagslegt tjón fyrir Hveragerði og ekki síður tilfinningalegt.
Það hafa tæplega 4000 manns kvittað á Fésbókarsíðu til minningar um Bóbó, "apann" í Eden, sem brann inni.
Axel Jóhann Hallgrímsson, 22.7.2011 kl. 14:37
Það var sosum kominn tími á upplyftingu á Eden, vonandi verður aftur byggt þarna. Sé mest eftir páfagaukunum og bananatrénu. Reyndar hef ég ekki komið þarna í mörg ár.
Kidda, 22.7.2011 kl. 15:40
"Reykjarmökkurinn náði 2,5km hæð"
Enn einn mökkurinn stígur hátt til lofts í sjónlínu við þig Ásdís, í þetta sinn ekki vegna eldgoss heldur stórbruna.
Mesta mildi að það var logn, því miðað við stærðina á bálinu hefði það í hvassviðri getað breiðst hratt út í nærliggjandi byggingar, og ekki hefði heldur verið gott að fá svartan reykinn yfir byggðina í Hveragerði.
Kveðjur austur fyrir fjall.
Guðmundur Ásgeirsson, 22.7.2011 kl. 16:21
Já, maður gleðst yfir að ekki fór verr.
Ásdís Sigurðardóttir, 22.7.2011 kl. 16:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.