11.7.2011 | 11:51
Eins og ég sagði í gær þá verður þetta komið í lag fyrr en varir..
... enda mikilvægt fyrir þá sem búa fyrir austan að hafa greiðan aðgang að þjónustu og vörum hérna megin. Það er líka alveg ljóst að það verða að vera nægar þyrlur til umráða á meðan ástandið er svona. Ég segi ekki "skítt með" ferðamennina, en mér finnst skipta máli að fólkið í landinu sé öruggt og geti komist til og frá þegar þörfin er brýn og reyndar alltaf.
Við höfum tekist á við stærri vandamál en þetta, nú er bara að bretta upp ermarnar og sýna það í verki hvað hægt er að gera þegar allar hendur vinna jákvætt að sama verki, þá flýtur ferðaþjónustan með og allir verða glaðir.
|
Ætla að selflytja fólk yfir |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |









dolla
hross
milla
skralli
jodua
gudnyanna
ollana
don
ommi
naflaskodun
lebowski
skagstrendingur
jensgud
bjarnihardar
harhar33
martasmarta
herdis
sigro
estersv
beggo3
athena
kiddatomm
huxa
sigrunzanz
sighar
saedis
makeupgallery
hogni
zordis
asdisemilia
jonsnae
agbjarn
sattekkisatt
brandurj
ea
gudjonelias
axelma
kristjan9
marinogn
Athugasemdir
Við megum ekki gleyma að hér er mikil þörf á gjaldeyri inn í landið, og ferðamenn koma með hann. Allt sem heggur á þessa tekjulind framtíðarinnar á Íslandi, ferðaþjónustuna, kostar gífurlega mikið.
Það er mikil neyð hjá mjög mörgu fólki á Íslandi, sérstaklega þeim sem minnst mega sín vegna aldurs og heilsubrests. Svo kaldranalegur er sannleikurinn á Íslandi. Þjóðarbúið tapar á hverjum degi af miklum gjaldeyri ferðamanna, meðan samgöngur eru alveg rofnar. Ferðamenn nota ekki bara gjaldeyri í ferðaþjónustu, heldur í alla þjónustu á ferð sinni um landið. Þar að auki er það góð auglýsing fyrir ferðamenn, ef þeir sjá að hlutunum er bjargað strax, til að standa við að koma fólkinu um landið, eins og um var samið, þegar fólk bókar ferðir til Íslands.
Að sjálfsögðu skiptir miklu máli með öryggi allra landsmanna að læknisþjónustu, en við erum með öflugt sjúkra-þyrluflug og björgunarsveitir, sem gætu reddað neyðartilfellum í smátíma.
Við höfum ekki efni á að segja skítt með ferðamenn, þegar hlutirnir eru settir í þetta samhengi, og meðan fjöldi fólks á ekki í sig á, í landinu, vegna fjárskorts/gjaldeyrisskorts þjóðarbúsins. Þjónusta og vörur í þéttbýlinu kostar líka gjaldeyri. Það er sami gjaldeyrissjóður fyrir allt landið, ennþá að minnsta kosti.
M.b.kv.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 11.7.2011 kl. 12:38
Sæl Anna og takk kærlega fyrir þitt innlegg. Ég er mjög sammála þér, en kannski að láta það pirra mig smá hvað ferðaþjónustan er fljót til að mála skrattann á vegginn, í síðustu viku var talað um met sumar þrátt fyrir Grímsvatnagosið, nú er það þetta og ég hef fulla trú á að allir séu að gera það sem hægt er til að redda þessu a.s.a.p. en ég segi ekki "skítt" með ferðaþjónustuna, vildi bara draga fram hlut heimamanna. :)
Ásdís Sigurðardóttir, 11.7.2011 kl. 12:46
Það þarf enginn að segja mér að ferðamenn nýkomnir til landsins snúi heim í fýlu út af þessari brú, eða þeir sem eru rétt ókomnir rífi farmiðana sína og hætti við Íslandsferð.
Menn breyta bara sínum ferðaáætlunum og eyða sínum gjaldeyri annarstaðar á landinu. Er þessi Erna Hauksdóttir, eða hvað hún heitir sú góða kona, ekki fulltrúi ferðaþjónustunnar um allt land?
Það er þokkalegt fyrir ferðaþjónustuna fyrir vestan, norðan og austan að heyra það frá henni að fjölgun ferðamanna hjá þeim sé glatað fé og vísasta leiðin til að rústa greininni.
Axel Jóhann Hallgrímsson, 11.7.2011 kl. 14:50
Sammála Axel......... Verða ekki líka að vera til PENINGAR til að byggja upp svona tjón?
Ester Gísladóttir, 11.7.2011 kl. 15:15
Axel já þetta er málið.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.7.2011 kl. 00:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.