Allt er barátta um völd og yfirráð.

En hvort litlu Grímsstaðir á Fjöllum eru hluti af stóra heimsplottinu, ætla ég ekki að dæma um. Þó tel ég víst að við verðum að skoða alla anga málsins.  Það er ljóst að eigendur munu selja og skil ég það fullkomlega að þau vilji selja landið og þá kemur stóra spurningin, hvort viljum við selja landið til Íslendinga eða útlendinga?  ég tel að best sé að við eigum landið sjálf og leigjum einungis, það hlýtur að vera áhættuminnst og þannig ættum við að geta sjórnað því alfarið, hverjir nýta landið okkar og ef menn gera meira en leyfilegt er má hreinlega reka þá í burtu. Hefði einhver moldríkur bandaríkjamaður látið sér detta það sama í hug og Nubo, þá væri hann örugglega búinn að kaupa landið fyrir löngu og enginn hefði sagt neitt.  Góða helgi.
 
kscn1769l  

mbl.is Íslendingar haldi vel á spilunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 4. ágúst 2012

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband