16.8.2012 | 11:30
Þetta er svona álíka íþróttamannslegt og bjórdrykkja á kappleikjum.
Ég ætla nú bara að leyfa mér að vera gagnrýnin. Finnst hallærislegt þegar íþróttaunnendur "nenna" ekki að labba smá spöl á leik og leggja þar með löglega, nei, heldur þarf að leggja upp á túni og stytta þannig mögulegan gönguspöl að velli. Þetta finnst mér álíka hallærislegt og að þurfa að drekka bjór á kappleikjum. Það er bara staðreynd að allt of stór hópur Íslendinga kann ekki að fara með áfengi og það þýðir sko ekkert að mótmæla mér, ég er orðin það fullorðin að ég veit alveg hvað ég er að segja. Sjáið þið t.d. fyrir ykkur að hægt væri að selja bjór í bíó eins og gert var í bíóhúsum í Hollandi fyrir 25-30 árum síðan? þar sást ekki vín á nokkrum manni og enginn var með læti, samt voru margir að drekka. Hér væri allt komið í bál á brand fyrir hlé. Tala nú ekki um tónleika, þar sem ég get reyndar skilið að einhverjir vilji fá sér í tánna, enn að "detta í'ða" á slíkum viðburðum er mér með öllu óskiljanlegt, þó mér hafi nú þótt gott að fá mér bjór og léttvín, þá hef ég aldrei snert slíkt á tónleikum, þá fara hlutirnir að fara fyrir ofan garð og neðan og daginn eftir getur maður bara sagt, það var rosalega gaman, þó án þess að muna svo voða vel af hverju. Þeir tónleikar sem ég hef séð á Íslandi er alltaf á mörkunum við að leysast upp í sveitaballastemmingu og hundleiðinlegt hvað fólk rápar fram og til baka, öðrum til ama, bæði til að pissa og drekka meira. Ég held við ættum frekar að draga úr drykkju á opinberum viðburðum, nógur er nú tíminn samt til slíkrar iðju. Farið varlega inn í helgina og hagið ykkur vel.
|
Latir íþróttaáhugamenn sektaðir |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)









dolla
hross
milla
skralli
jodua
gudnyanna
ollana
don
ommi
naflaskodun
lebowski
skagstrendingur
jensgud
bjarnihardar
harhar33
martasmarta
herdis
sigro
estersv
beggo3
athena
kiddatomm
huxa
sigrunzanz
sighar
saedis
makeupgallery
hogni
zordis
asdisemilia
jonsnae
agbjarn
sattekkisatt
brandurj
ea
gudjonelias
axelma
kristjan9
marinogn