21.7.2012 | 11:32
Skelfilegur atburður, en....
.... ég stoppa örlítið við loforð um réttlæti. Hvernig getur forsetinn lofað einhverjum réttlæti eftir svona hræðilegan atburð? minnir mig á stóru orðin eftir 9/11, veit nokkur enn hvað raunverulega gerðist.? í þessari árás núna tók ungur maður sig til og ákvað að vera "voða fyndinn" að eigin mati og hleypa lífi í spennumynd sem fólk hefur beðið eftir eins og ekkert sé meira spennandi í veröldinni en sá brenglaði veruleiki sem þar er sýndur. Slík var spennan að kornabörn voru á sýningunni, ég er hrædd um að vandamálið sé miklu meira og dýpra en Obama sér fyrir sér. Stór hópur fólks virðist veruleika firrtur og lifir hreinlega í "öðrum heimi" ótengt við raunveruleikann og það elur af sér geðveiki og svona hrylling eins og við höfum nú séð. Því miður er ég þess fullviss að það er aldrei hægt að vernda bandaríska þjóð fyrir svona atburðum, geðveikir einstaklingar sem spá ekkert í afleiðingar gjörða sinna verða því miður alltaf til og ég er hrædd um að þeim muni bara fjölga í kjölfar alls þess sem í boði er í afþreyingar iðnaðinum og öðru. Þó ljótt sé, má í versta falli segja, að hin ímyndaði veruleiki hafi bitið í rassgatið á sjálfum sér, einn einstaklingur sem tók "grínið" of langt og eftir lágu 14 í valnum.
|
Obama hughreystir þjóð sína |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)









dolla
hross
milla
skralli
jodua
gudnyanna
ollana
don
ommi
naflaskodun
lebowski
skagstrendingur
jensgud
bjarnihardar
harhar33
martasmarta
herdis
sigro
estersv
beggo3
athena
kiddatomm
huxa
sigrunzanz
sighar
saedis
makeupgallery
hogni
zordis
asdisemilia
jonsnae
agbjarn
sattekkisatt
brandurj
ea
gudjonelias
axelma
kristjan9
marinogn