Réttur hvers einstaklings er að vita uppruna sinn !!

Til hamingju Jakob Frímann, ég samgleðst þér.  Það er hverjum manni nauðsyn að þekkja uppruna sinn. Við hjónin höfum reynslu af svona málum og skipti sköpum fyrir minn mann að vita hverra manna hann í raun er, þótt langt væri liði á ævina.  Þannig var að hann var alla tíð rangt feðrarður með vilja þeirra sem að honum stóðu, þetta hafði mikil áhrif á allt hans líf og breytti í raun öllu.  Samt er þó hægt að segja að "betra er seint en aldrei".  Fyrir rúmum tveim árum fékk hann að vita þetta og fékk þá tvær af nýju systrum sínum í blóðprufu með sér, þar sem faðir hans var látinn.  Reyndar sögðu þeir sem þekktu föður hans að hann þyrfti nú ekkert DNA þar sem hann væri spegilmynd föður síns og svo ótal margt í fari hans sem var gjörsamlega eins, copy/paste eins og sagt er í dag, DNA lætur ekki að sér hæða svo mikið er víst.  Í stað þess að eiga 4 alsystkin og eina hálfsystir á hann núna 14 hálfsystkyni og það besta er að í nýja hópnum fann hann hinn helminginn af sjálfum sér, samsvörun við einstaklinga sem eru eins og hann.  Ég hafði oft á orði í gegnum árin að mér þætti undarlegt að hann væri náskyldur systkinum sínum þar sem hann væri svo gjörólíkur þeim, en ég skrifaði það á sveitauppeldið hjá ömmu hans og afa, en svo kom bara í ljós að hann var genatískt svo lítið skyldur þeim að þetta var eðlilegt. Mig langar bara að brýna fyrir fólki að leyna ekki börn uppruna sínum, þau þjást fyrir það leynt og ljóst þó svo að fólk haldi að svo sé ekki.  Látið ekki syndir feðranna koma niður á börnum ykkar. 
 
 

mbl.is Jakob Frímann fær lífsýni Davíðs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 11. júlí 2012

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband